
Morgunblaðið
hefur breytt fyrirkomulagi helgarútgáfunnar hjá sér. Frá og með helginni sem leið er
sunnudagsblaðið framvegis kallað "SunnudagsMogginn" og dreift til áskrifenda
með laugardagsblaðinu. SunnudagsMogginn verður með lífstílstengdar greinar
ásamt fréttaskýringum. Matur&vín, kvikmyndir, viðtöl, hönnun, ferðalög og
fleira. Skv. Morgunblaðinu er lagt upp með að gera SunnudagsMoggann að eins
konar vikuriti sem lesendur munu grípa í yfir vikuna.
Stærð
blaðsins er aðeins minni en hefðbundin stærð Morgunblaðsins, svipuð og á
sérblöðum Morgunblaðsins hér áður fyrr, M-tímarit, Lifun, Tímaritið. Nýtt
barnablað "Disneyblaðið" mun fylgja sunnudagsútgáfunni og Lesbókin
flyst yfir í SunnudagsMoggann.
Það
verður spennandi að fylgjast með þessari þróun hjá Morgunblaðinu.