Fyrirtæki og facebook
Íslensk fyrirtæki hafa síðustu árin verið nokkuð öflug í því að opna facebook síður fyrir starfsemi sína. Misjafnt er hvernig fyrirtækin stýra sinni síðu og hvers konar efni eru sett þar inn. Í upphafi þegar prófílsíða fyrirtækis eða vörumerkis er opnuð er yfirleitt farið í aðgerðir til að ná til fólks, þeirra sem líklegastir eru til að kaupa vöruna. Því næst er reynt að nálgast fylgjendur enn frekar til að eiga í virkum samskiptum með því að pósta efni sem er líklegt til að vekja áhuga þeirra.
Breytingar á dagblaðalestri
Ný dagblaðakönnun Capacent Gallup var að koma út sem framkvæmd var á tímabilinu júlí til september. Frá síðustu mælingu fyrr á árinu hefur lestur dregist saman hjá öllum þeim prentmiðlum sem eru í mælingu en misjafnlega mikið þó. Þegar allt landið er skoðað kemur í ljós að meðallestur á tölublað hjá Morgunblaðinu er 32% og hefur aldrei verið lægri frá því að mælingar með núverandi fyrirkomulagi hófust. Meðallestur á Fréttablaðið er tæp 60% og hefur aðeins tvisvar sinnum áður mælst lægri.
Fréttablaðið tilkynnir um 4% hækkun á verðskrá.
Eftirfarandi tilkynning kom frá Jóni Laufdal, auglýsingastjóra Fréttablaðsins:
"Fréttablaðið tilkynnir hér með 4% hækkun á verðskrá auglýsinga sem tekur gildi mánudaginn 10. okt 2011. Síðustu breytingar á verðskrá Fréttablaðsins voru um áramót 2010/2011."
Vörumerkið sem miðill
Tíma fólks á netinu er í síauknu mæli eytt á ýmsum netsamfélögum og eru Íslendingar virkir þátttakendur í mörgum þeirra. Flestir þekkja Facebook og YouTube nokkuð vel en Twitter, Flickr, Foursquare og Delicious sem dæmi eru minna þekkt. Mörg fyrirtæki hafa þreifað sig áfram á þessum samfélögum í þeim tilgangi að eiga samskipti við viðskiptavini sína og efla vitund um vörumerkið sitt. Sumir eru ennþá talsvert ráðvilltir, margir gera þetta mjög vel og nokkrir eru snillingar á þessu sviði.
Hvenær er almenn þekking almenn?
Lúðrahátíð markaðsfólks er nýafstaðin. Markaðsdagur Ímark „Allskonar fyrir markaðsfólk“, var vel sóttur í ár og uppselt var á Lúðurinn, íslensku auglýsingaverðlaunin, um kvöldið. Almenn ánægja var með markaðsdaginn og fannst ráðstefnugestum fyrirlesararnir vera með gott innlegg í markaðs-starfið. Til að fyrirlestur teljist almennt góður og gagnlegur þurfa þeir sem sitja hann að hafa ákveðna grunnþekkingu á efninu til að hann nýtist þeim sem best.
Videoleiga og facebook gjaldmiðill
Það er alltaf svolítið spennandi þegar nýjungar koma á markað og fyrir markaðsfólk þá er ný tegund af þjónustu og hugsanlega breyttar notkunarleiðir fyrir neytendur afar spennandi. Þá keppast fyrirtæki á samkeppnismarkaði um að vera fyrr til að grípa ýmis tækifæri, ekki síst þegar að tækninýjungar eiga í hlut, því það að vera fyrstur til að gera vörur betri fyrir neytendur getur gefið vörumerkjum gott samkeppnisforskot.
Sjónvarpisáhorf, nýtt á dagskrá & fermingar
Við tókum saman áhorfstölur á nokkra nýja dagskrárliði sem fóru af stað í febrúarmánuði. Flestir dagskrárliðanna sem við skoðuðum, voru tiltölulega jafnir í áhorfi hjá konum og körlum en mesta muninn sáum við í matreiðsluþættinum Framandi og Freistandi (Yesmine Olsson á RÚV) þar sem áhorf hjá körlum var 14,7% en 19,7% hjá konum. Við skoðuðum einnig áhorf dagskrárliðanna hjá aldurshópunum 18-35 ára og 25-55 ára. Lokaþáttur Söngvakeppninnar var með yfir 45% meðaláhorf hjá báðum hópum, aðeins sterkari í eldri hópnum með 54% meðaláhorf.
Sjónvarpið í ársbyrjun

Nú er fyrsti mánuður þessa árs liðinn og nóg að gerast í bransanum, sérstaklega hjá sjónvarpsstöðvum landsins. Stöð 2 Sport átti góðan mánuð og var áhorfið á leiki íslenska landsliðsins í HM í handbolta yfirleitt mjög gott. Áhorf í aldursflokknum 18-49 ára í leik Íslands og Ungverjalands, 14.janúar kl. 16-17.30 var um 43% og var leikurinn í opinni dagskrá.
Verðskrárbreytingar hjá Fréttablaðinu
Fréttablaðið hefur sent út þá tilkynningu að .janúar muni verð hjá prentmiðlum 365 hækka um 4%. Hækkunin tekur til allra blaðhluta Fréttablaðsins.
Markaðsdagatal 2011

Aðlögun markaðsefnis að árstíðabundnum viðburðum viðskiptavina er mikilvægur þáttur í að hámarka virði skilaboða
auglýsinga. Við hér á AM höfum síðustu
ár tekið saman helstu viðburði sem eiga sér stað yfir árið til að aðstoða
viðskiptavini okkar við strategíu birtinga auglýsinga yfir árið. Í ár,eins og í fyrra er viðburðadagatalið
okkar á netinu og uppfærum við það reglulega.
Breytingar á Skjá einum
Skjár 1 hefur fært nokkra dagskrárliði upp um verðflokk í kjölfar áhorfsbreytinga og aukinnar ásóknar í birtingar á stöðinni. Helstu þættir hafa verið færðir upp um einn verðflokk sem felur í sér hækkun á sekúnduverði um 500kr. Skjáauglýsingatímar hafa einnig verið hækkaðir.
Dagur rauða nefsins 2010
Næstkomandi föstudagskvöld
verður söfnunarútsending í opinni dagskrá á Stöð 2 í tilefni af Degi
rauða nefs
UNICEF. Fjöldi listamanna og grínara koma fram og kynnar dagskráinnar
verða þau
Þorsteinn Guðmunds og Gulla, Þorsteinn Bachmann og Edda Björgvins, og í
símaveri munu Auðunn Blöndal, Helga Arnars, Rikka og Freyr Eyjólfs
standa
vaktina.
Meðal annarra munu Ari Eldjárn, Halldóra
Geirharðsdóttir, Helga Braga Jónsdóttir, Hugleikur Dagsson, Ilmur
Kristjánsdóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Jóhannes Haukur,
Memfismafían,
Ný Dönsk, Sigtið, Sirkus Íslands, Spaugstofan, Steindi jr.,
Uppistöðufélagið og
fleiri og fleiri koma að hátíðardagskránni.
Nýjar dagblaða- og nætmælingar
Í dag birtust niðurstöður úr dagblaða- og
netmiðlamælingum Capacent fyrir tímabilið ágúst-október 2010.
Meðallestur á tölublað hjá Morgunblaðinu og Fréttablaðinu helst nánast
óbreyttur frá síðasta tímabili (maí-júlí) hjá 12-80ára.
Meðallestur á tölublað á Morgunblaðinu mælist nú 31.5%, mældist 32.1% á
síðasta
tímabili. Meðallestur á tölublað Fréttablaðsins mælist nú 60.9%, mældist
61.4%
á tímabilinu maí-júlí. Lestur dagblaðanna tveggja er því örlítið lægri
nú en þó
er minnkunin ekki mikil.
Borgarleikhúsið markaðsfyrirtæki ársins

Borgarleikhúsið
var nú í nóvemberbyrjun kosið markaðs- fyrirtæki ársins af ÍMARK, samtökum
markaðsfólks á Íslandi. Starfsfólk
leikhússins hefur verið með skýra stefnu í verkefnavali og markaðsmálum
síðan
haustið 2008 og hefur vaxið töluvert frá þeim tíma. Aðsókn hefur aldrei
verið betri, kortasalan
margfaldast og starfsemin í miklum blóma. Borgarleikhúsið
hefur unnið markaðsstarfs sitt mjög
strategískt frá upphafi leikárs 2008 og verið sérstaklega fylgið sér í
markaðsstefnu milli leikára.
Magnús lætur af störfum
Magnús Bjarni Baldursson
framkvæmdastjóri Auglýsingamiðlunar frá stofnun þess 2002 lét af störfum
um
síðustu mánaðarmót. Hann hefur hafið
störf sem markaðsstjóri hjá Spkef og óskum við honum velfarnaðar á nýjum
vettvangi.
Rúna Dögg Cortez fagstjóri birtinga og
aðstoðarframkvæmdastjóri um nokkurt skeið hefur tekið við starfi
framkvæmdastjóra
Auglýsingamiðlunar. Rúna hefur lokið
B.A. prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands.
Ólík andlit forsjárhyggju

Nú á dögunum gaf Fíton auglýsingastofa út
Fítonblaðið sem var glæsilegt að vanda og var þetta níunda árið í röð sem blaðið kemur út. Við á Auglýsingamiðlum skrifuðum eina grein í blaðið og var það Ásmundur rannsóknarstjóri sem tók saman grein um hin ólíku andlit forsjárhyggju en boð og bönn var þema blaðsins að þessu sinni. Rýnt var í hverjir eru helst hlyntir forsjárhyggju.Niðurstöður sýndu meðal annars að fólk á
landsbyggðinni er hallara undir forsjárhyggju en þeir sem búa á
höfuðborgarsvæðinu og að kjósendur Sjálfstæðisflokksins og Vinstri
grænna einnig i saman- burði við aðra flokka þó á ólíkum sviðum og
líklega
á mismunandi forsendum. Greinina í heilu lagi má sjá
hér.
Skjárgolf & Fréttatíminn
Nú með haustinu
eru að eiga sér nokkrar breytingar á fjölmiðlamarkaðinum hér á Íslandi.
Þann 28.september mun Skjárinn opna fyrir
Skjárgolf stöðina en þar verður eingöngu sýnt frá golfíþróttinni út um
allan heim og verður aðgangur opinn öllum
þann 28. og 29.september til kynningar.
Verðið fyrir mánuðinn er kr. 2.890.
Nokkrum dögum síðar eða þann 1. október mun nýtt dagblað hefja göngu
sína, Fréttatíminn.
Auglýsingabirtingar

Það eru margir sem kannast við að um leið og nýr bíll er keyptur þá
skyndilega
sér viðkomandi sams konar bíla hvert sem litið er. Eitthvað sem er
eflaust mjög dæmigert, hugurinn
er við eitthvert ákveðið málefni og
athyglin á umhverfinu endurspeglar
það. Það er ekki svo ósvipað sem gerist
þegar markaðs- og auglýsingafólk virðir
auglýsingar fyrir sér sem birtast á hinum ýmsum stöðum. Hugmyndir,
skilaboð, framsetning og val á
miðlum er allt skoðað og pælt í.
Sólarbirta

Sumarið er komið,
fólk dreifist um allt land og utan þess einnig.
Margir lifa gjörólíku lífi á
þessum tíma ársins, þessar nokkrar vikur ársins meðan sólin er hátt á
lofti. Þetta er ekki háannatími auglýsingabirtinga
hjá mörgum fyrirtækjum en það eru helst útivistaverslanir og
bjórframleiðendur
sem eru dugleg að auglýsa í hefðbundnu miðlunum á þessum árstíma og láta
HM
ekki framhjá sér fara þetta árið. Það
er þó mikilvægt að halda tengslum við viðskiptavini sína yfir þetta
tímabil einnig, jafnvel með óhefðbundnari og öðrum leiðum en yfirleitt er gert.
Netnotkun aldrei meiri

Það eru svo
sannarlega búnir að vera viðburðaríkir og dramatískir dagar á Íslandi
síðustu
vikur og eitt er víst að fólk er duglegt að fylgjast með umræðum og
fréttum á
netinu. Á
teljari.is má sjá heimsóknartölur
yfir margar af stærstu og mest sóttu heimasíðum landsins og sést aukning
notenda og flettinga í síðustu viku greinilega þegar tölur er bornar
saman við
vikurnar á undan.
AM morgunkaffi - Netið

Síðastliðinn
þriðjudag héldum við morgunkaffi í Norræna húsinu þar sem umræðuefnið var
netið og möguleikar í notkun þess í markaðsstarfi. Fjölmargir sýndu þessu fundarefni áhuga og
mættu margir viðskiptavinir okkar, samstarfsaðilar á auglýsingastofum landsins
og fjölmiðlum, nemendur og aðrir utanaðkomandi sem sóttu í frekari þekkingu á viðfangsefninu.
Komdu í kaffi- Morgunkaffi um netið og markaðsmál.

Þriðjudaginn 16.mars kl.9.00 ætlum við á Auglýsingamiðlun að
halda morgunverðarfund í Norræna húsinu fyrir viðskiptavini okkar og aðra sem hafa áhuga. Fjallað verður um allt sem snýr að netinu í
markaðsstarfi fyrirtækja. Meðal annars
verður fjallað um leitarorð, vefborða, CTR hlutfall, samfélagsvefi,
þátttökuviðleitni fyrirtækja og margt fleira, sjá
video.
Íslenski markaðsdagurinn

Síðastliðinn
föstudag var íslenski markaðsdagurinn haldin á Nordica og var mikið um fróðleik
og gleði þennan dag. Ráðstefna var
haldin yfir daginn þar sem Dr. Kevin Lane Keller fjallaði um markvissa uppbyggingu vörumerkja
og tóku nokkrir starfsmenn
Auglýsingamiðlunar daginn í að hlusta á Keller, einn aðal höfund kennslubóka í
markaðsfræði í heiminum í dag.
Fréttablaðið minnkar
Í dag kom Fréttablaðið út í breyttri stærð heldur en verið hefur hingað til. Hæð blaðsins hefur minnkað um tvo sentimetra. Hæð blaðsins hefur verið 42 sm en er nú 40 sm eftir breytingu. Breidd blaðsins breyttist hinsvegar ekki. Heilsíðu auglýsingar ásamt ýmsu föstu auglýsinga- plássi mun taka breytingum með nýrri stærð og hafa flest allir hönnuðir samstarfsstofa okkar verið látnir vita.
Dagblaðalestur dregst saman

Nú á dögunum birti Capacent Gallup nýjar niðurstöður úr könnun á dagblaðamarkaðinum á Íslandi
sem framkvæmd var á tímabilinu nóvember 2009- janúar 2010. Lestur hefur ekki verið minni á stóru
dagblöðunum tveimur, Fréttablaðinu og Morgunblaðinu frá því að núverandi form
mælinga var tekið upp í byrjun árs 2007.
Uppsöfnuð dekkun Fréttablaðsins mælist nú 82,1% yfir vikuna en var 87% á
sama tímabili á síðasta ári. Morgunblaðið hefur í dag uppsafnaða dekkun yfir vikuna 57,8% en
hafði 69,9% fyrir ári síðan.
Kemur fyrirtækið þitt upp í leitarvélunum á netinu?

Leitarvélar eru að verða sífellt mikilvægara
markaðstæki og því nauðsynlegt að fyrirtæki tryggi eins vel og kostur er að að
fyrirtækið komi fram í leitarniðurstöður
hjá notendum. Tölfræðin segir okkur að
um 85% netnotenda noti leitarvélar til að finna vefsíður og að 75% þeirra sem noti leitarvélar séu með kaup
á vöru og/eða þjónustu í huga er þeir leita. Ef þitt fyrirtæki birtist t.d. ekki
ofarlega í leitarniðurstöðum á Google er talsverð hætta á að mögulegir
viðskiptavinir rati aldrei á þína síðu þar sem um 84% allra skoða einungis
fyrstu síðuna af leitarniðurstöðum. Kíktu
hér til að fá frekari upplýsingar.
AM 2009

Is it true? - Söng Jóhanna Guðrún í Moskvu þetta árið,
aðeins nokkrum mánuðum eftir að fréttir bárust heimsbyggðinni og okkur saklausu
Íslendingunum að landið væri komið á hliðina í mörgum skilningi. Fjármál
einstaklinga og fyrirtækja tóku stakkaskiptum á stuttum tíma, breyttar áherslur
í viðskiptum litu dagsins ljós og ákvarðanir í markaðsmálum og auglýsingagerð
tóku breytingum. Það má því segja að árið 2009 hafi að mörgu leyti farið
í leit lausna hjá okkur, samstarfsaðilum og viðskiptavinum, nýrra lausna í
breyttu landslagi í markaðsmálum- ágætis áskorun þar.
Notendur Facebook tala meira um vörur og þjónustu en aðrir hvort sem um ræðir umræðu á netinu eða ekki skv. nýrri bandarískri könnun

Fyrirtæki eru í
auknu mæli farin að nýta sér samfélagsvefi til að ná betri tengslum við
markhópa sína. The Keller Fay Group fylgist árlega með um 350.000 markaðstengdri
umræðu með
TalkTrack
mælingum fyrirtækisins hvort
sem um ræðir online umræður eða ekki. Partur af ferlinu eru regluleg viðtöl við
panel sem samanstendur af 36.000 manns en nýverið hefur fyrirtækið nýtt sér
þessa leið til að meta hlutverk Facebook í vörumerkjauppbyggingu.
Hræringar á fjölmiðlamarkaði, MBL, Skjárinn og FBL

Morgunblaðið
hefur breytt fyrirkomulagi helgarútgáfunnar hjá sér. Frá og með helginni sem leið er
sunnudagsblaðið framvegis kallað "SunnudagsMogginn" og dreift til áskrifenda
með laugardagsblaðinu. SunnudagsMogginn verður með lífstílstengdar greinar
ásamt fréttaskýringum. Matur&vín, kvikmyndir, viðtöl, hönnun, ferðalög og
fleira. Skv. Morgunblaðinu er lagt upp með að gera SunnudagsMoggann að eins
konar vikuriti sem lesendur munu grípa í yfir vikuna.
Stærð
blaðsins er aðeins minni en hefðbundin stærð Morgunblaðsins, svipuð og á
sérblöðum Morgunblaðsins hér áður fyrr, M-tímarit, Lifun, Tímaritið. Nýtt
barnablað "Disneyblaðið" mun fylgja sunnudagsútgáfunni og Lesbókin
flyst yfir í SunnudagsMoggann.
Það
verður spennandi að fylgjast með þessari þróun hjá Morgunblaðinu.
Twitter ... á ég?

Við heyrum á mörgum viðskiptavinum okkar að þeir eru
forvitnir um Twitter, hugsanlegum möguleikum þess en eru hræddir á sama tíma,
þekkja ekki samfélagið og telja það jafnvel vera góð áskrit á tímaeyðslu. Klassíska
sagan er að þetta sé bara bóla sem muni springa innan skamms.
Jú vissulega fer einhver tími í að skoða
twitterinn, hins vegar eru kostir þess einnig fjölmargir, það margir að það er
þess virði að skrá sig inn og kíkja.
Fítonblaðið kemur út í dag!
Í dag ríkir mikil gleði í Garðastrætinu því
Fítonliðar hinum megin við götuna eru að gefa út sitt árlega Fítonblað. Þetta
er áttunda árið sem blaðið kemur út og óhætt að segja að blaðið sé hið
glæsilegasta. Síðustu vikur og daga hafa allir lagst á eitt við að þjónusta
viðskiptavini auk þess að vinna að blaðinu í hjáverkum. Hönnuðurnir fengu meðal annars það
verkefni að gera tillögur að auglýsingum um hvaða áhrif ESB aðild hefði á
auglýsingafagið og
komu margar skemmtilegar pælingar
úr því verkefni.
Við á Auglýsingamiðlun lögðum til stutta
umfjöllun um netið og möguleika þess í markaðsstarfi.
"You are in control"

You Are In
Control ráðstefnunni lauk í gær og var yfirskrift hennar
The digital
revolution shakes the creative industries What´s to be Gained, Lost and
Learned? Fjölmargir
fyrirlesarar tóku til máls má þar nefna Paul Bennet frá
IDEO, Oisin Lunny frá
Habbo, Guðjón Már Guðjónsson frá
Hugmyndaráðuneytinu og Dave
Birss frá
Ogilvy London. Fjölbreyttar pallborðsumræður áttu sér stað þar
sem margir tóku þátt og var rætt margt sem tengist dreifingu tónlistar,
markaðssetningu og internetinu.
Farmiðlar framtíðarinnar

Hvernig verða samskipti manna árið 2020? "To go" dagblöð úr plasti úti á götum, öll bankaviðskipti (mobile payment) manna komin í símann, offline og online heimar orðinn einn og sami heimurinn? Digital natives, instant translation og mobile agenda eru hugtök sem eru farin að sjást og heyrast sífellt meira. Áhugavert myndband sem skyggnist aðeins inní framtíðina, The future of mobile media and communication.
Landsbyggðin hætt að lesa?
Meðallestur bæði Fréttablaðsins og Morgunblaðsins dregst saman í
maí-júlí könnun Capacent sem nýlega kom út. Fréttablaðið er með rúmlega 61%
meðallestur og Morgunblaðið með rúmlega 39%. Fimmtudagsblað Fréttablaðsins er
sterkasta blað vikunnar með 64,9% lestur á landsvísu. Lestur Morgunblaðsins er
þó aðeins meiri nú en hann var í könnun á sama tímabili síðasta sumar. Lestur
Fréttablaðsins á landsvísu hefur dregist saman um rúmlega 3,5% ef borið er saman
við síðasta sumar.
Hver eru markmið vefborðans?

Auglýsingar á netinu er alltaf að fá meira vægi en áður í markaðsefni
fyrirtækja. Síðasta könnun ÍMARK meðal
markaðsstjóra gaf það meðal annars til kynna að flestir gerðu ráð fyrir að eyða
meira í markaðssetningu á netinu árið 2009 heldur en áður. Það hentar mörgum vörumerkjum að auglýsa á
netinu, þó er miðillinn mis mikilvægur eftir því hvaða vara og/eða þjónusta
er í boði.
Markmið með vefborða geta verið mismunandi en flestir vilja þó fá notendur
til að smella á auglýsinguna og skoða heimasíðu fyrirtækisins.
Twitter nauðsynlegur hluti af ...

Bandaríska raftækjaverslunin Best Buy setti á
dögunum fram nýstárlegar kröfur fyrir umsækjendur um markaðsstarf hjá
fyrirtækinu. Umsækjendur þurftu nefnilega, auk starfsreynslu og menntunar, að hafa
minnst 250 fylgjendur á samskiptasíðunni Twitter en þess hefur ekki verið óskað
áður í starfsumsókn svo vitað sé.
Forstjóri fyrirtækisins, Brian Dunn,
er mikill aðdáandi Twitters en sjálfur hefur hann um 1.700 fylgjendur. Nýverið
hvatti hann viðskiptavini og
fjárfesta í fyrirtækinu, sem ekki gátu mætt á ársfund, til að fylgjast með
framvindu hans á Twitter.
Ekki fylgir sögunni hve margir fylgdust með ársfundinum á Twitter en búið
er að ráða í starfið sem auglýst var til umsóknar.
"The best job in the world"

Markaðssetning á samfélagsvefjum
(e. social media) er fyrirbæri sem alltaf er að aukast, á sama tíma og aukning er meðal fjölda fólks sem tekur þátt í slíkum samfélögum. Nýlega gerði ferðamálaráð Ástralíu
skemmtilega tilraun sem lið í því að auka ferðamannastraum til landsins. Sett var af stað samkeppni “The best job in
the world” þar sem leitað var eftir bloggara sem fær fjölda heimsókna daglega
og honum boðið til landsins.
Fyrirmyndarfyrirtæki 2009

Nýlega veitti VR verðlaunin
“Fyrirtæki ársins árið 2009”. Við hér á
Auglýsingamiðlun hlutum verðlaun annað árið í röð og erum í 9.sæti í flokki
minni fyrirtækja. Valið fór þannig fram að að
spurningalisti var lagður fyrir starfsmenn fyrirtækja þar sem þeir voru inntir
eftir mati á innra starfsumhverfi fyrirtækis síns. Mælingin náði til átta
mismunandi þátta í starfsumhverfi fyrirtækja. Við erum stolt af þessari viðurkenningu okkar, stolt af því að vera
fyrirmyndarfyrirtæki árið 2009.
Góður kosningaárangur
Síðustu vikur hafa ekki einungis verið
erilsamar hjá stjórnmálamönnum landsins heldur einnig starfsfólki
Auglýsingamiðlunar sem hefur staðið í kosningabaráttu með viðskiptavinum sínum,
Vinstri grænum og Samfylkingunni.
Unnið var stíft á tveimur stöðum með
kosningateymum flokkanna við rannsóknavinnu, greiningum á skoðanakönnunum og
ýmsum rannsóknum varðandi fylgi flokkana. Við erum því mjög glöð
fyrir hönd viðskiptavina okkar hversu vel báðum flokkum gekk og óskum þeim
velfarnaðar í komandi samstarfi.
Breytingar á lífstílshópunum
Lífstílshóparnir er markhópagreining sem við
höfum notað á síðustu árum, sumir mikið en aðrir minna. Allir sem vinna að
markaðsmálum ættu þó að þekkja þessa hópa. Til grundvallar skiptingu í þessa
hópa eru 155 spurningar í Neyslukönnun Capacent sem framkvæmd hefur verið
síðastliðin 2 ár í netkönnun. Allt til ársins 2007 var könnunin gerð í
dagbókarformi á pappír. Sú aðferð var ekki farin að skila nægjanlegum árangri,
úrtakið var frekar lítið og svarhlutfall lélegt. Því var brugðið á það ráð að
gera þetta að netkönnun og nú erum við að vinna með rúmlega 3.300 svör.
Sjónvarp um páskana
Fjölbreytt dagskrá er í boði í sjónvarpinu um páskana, íslenskt
efni, heimildamyndir, tónlist og kvikmyndir. Einnig verður nóg um að vera í sportinu, meðal annars golf og
fótbolti.
Rúv sýnir
heimildarmynd um Hljóma, Hljómar í Liverpool á laugardeginum. Einnig verður sýnd heimildarmynd um Jóhann
Eyfells á skírdag, Einungis fæðing. Á
öðrum í páskum verður mynd Friðriks Þórs, Djöflaeyjan, á dagskrá og á páskadag
verður sýnd upptaka frá tónleikum Denyce Graves sem voru á Listahátið 2008. Auk þessar verða margar kvikmyndir sýndar,
eins og Babel, The Bourne Ultimatum og Mary Poppins.
Íslenskt efni í sjónvarpi- vika 8
Enn og aftur skoðuðum við sjónvarpsáhorf hjá aldurshópnum 18 – 35 ára og 25 – 45 ára, og þess a vikuna tókum við líka
fyrir hópinn konur 20 – 50 ára.
Íslenskt efni er áberandi núna og hefur
innlendum þáttum fjölgað á topplistunum síðustu 3 vikurnar. Ef við tökum listann frá því fyrir þremur
vikum síðan þá voru fjórir íslenskir þættir á topp 10 listanum hjá 25- 45 ára og hjá 18 – 35
ára, en í síðustu viku þá voru átta íslenskir þættir á listanum hjá 25 – 45 ára
og einnig hjá 18- 35 ára, ekki sömu þættirnir.
Söngur og bílar í sjónvarpinu
Í síðustu viku var fyrsti þáttur Idol -
Stjörnuleitar á Stöð 2 og úrslit í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Þegar
skoðað er sjónvarpsáhorf meðal 18–35 ára og 25–45 ára kemur í ljós að tveir
efstu dagskrárliðirnir á topp 10 listunum eru Söngvakeppni Sjónvarpsins og
Spaugstofan líkt og í síðustu vikunni sem við settum hér inn, sem var vika 5.
Top Gear, sem sýndur er á sunnudagskvöldum
á Skjá 1, er vinsælasti þáttur þeirrar stöðvar í þessum hópum. Á sama tíma er þátturinn í þriðja sæti á top 10 lista
þessa vikuna hjá báðum hópunum.
Rafrænar ljósvakamælingar í eitt ár
Nú er ár liðið
síðan fyrstu gögn komu úr rafrænum ljósvakamælingum (PPM mælingar) Capacent og
við hófum að setja birtingaáætlanir upp í Infosys forritinu sem hýsir PPM
gögnin.
Það var bylting að
fá nýjar tölur vikulega. Nú eru áætlaðar dekkunar- og tíðni tölur uppfærðar
vikulega meðan plön eru enn í gangi og því
möguleiki að uppfæra birtingaplön ef þörf er. Nýir dagskrárliðir fá
mælingu strax og eru því ekki óþekktar stærðir í gegnum heila seríu eins og
gerðist stundum í dagbókamælingum.
Þetta var ekki
einungis bylting fyrir birtingastofur heldur einnig fyrir dagskrástjóra
fjölmiðlanna sem geta nú aðlagað dagskrár út frá upplýsingum mælinganna.
Samdráttur í Super Bowl

Um helgina mun
eiga sér stað einn stærsti auglýsingaviðburður ársins í Bandaríkjunum, sjálf
Super Bowl keppnin í amerískum fótbolta.
Keppnin dregur um 100 milljón manns að skjánum, eða um þriðjung
þjóðarinnar og er enginn annar atburður sem kemst nálægt keppninni í áhorfi. Auk þess hafa rannsóknir sýnt að margir horfa
á leikinn gagngert til að sjá auglýsingarnar, sérstaklega konur.
Í ár má segja að efnahagsástandið í Bandaríkjunum sé að segja til sín en eftirspurn eftir auglýsingaplássi er mun minni en síðustu ár.
Gagnvirkt veltiskilti

Fyrirtækið
Sharpie sem framleiðir meðal
annars merkipenna setti af stað áhugaverða herferð um daginn. Sett voru
upp gagnvirk veltiskilti í nokkrum borgum þar
sem fólk getur valið liti og skrifað
skilaboð á skiltin, eða eins konar graffiti.
Þannig er fólki gert mögulegt að koma sínum skilaboðum á framfæri og skilja
skilaboðin sín eftir. Með þessu tengir Sharpie krotþörf á jákvæðan hátt við
sína sterkustu vöru sem er merkipennar (permanent markers). Skemmtileg
hugmynd.
Fréttablaðið fækkar útgáfudögum
Á síðustu vikum hefur mikið verið spáð og spekúlerað með fjölmiðla
landsins og hefur ríkt nokkur óvissa um framtíð margra þeirra. Ekki hafa þó neinar
stórkostlegar breytingar átt sér stað eftir að 24 stundir var tekið af
dagblaðamarkaði og Skjár 1 ákvað að halda áfram útsendingum sínum.
Fréttablaðið boðaði þó smá breytingar í dag.
Hvað er í gangi 2009?
Út er komið “hvað er í gangi” dagatal Auglýsingamiðlunar fyrir árið 2009 og munu viðskiptavinir og samstarfsaðilar okkar fá það til sín innan skamms. Í þessu dagatali höfum við tekið saman helstu atburði hvers mánaðar fyrir sig, atburði sem auglýsendur notast oft við í markaðsefni sínu yfir árið. Atburðirnir eru allt frá því að vera þjóðlegir, skemmtilegir, árlegir, ómerkilegir, nýstárlegir og eða bara mjög augljósir. Hins vegar allt atburðir sem að markaðsfólk ættu að vera með á hreinu til að fylgja tíðarandum hverju sinni. Dagatalið í heild sinni má sjá hér.
Gogoyoko
Innan skamms opnar ný vefverslun með tónlist á netinu, Gogoyoko, og eru það íslenskir aðilar sem standa að versluninni. Vefnum er ætlað að gerbreyta hvernig tónlist er seld á netinu og áhersla lögð á að notendur, kaupendur og seljendur geti byggt upp gott tengslanet á auðveldan og þægilegan hátt. Þarna bætist við nýr og ferskur auglýsingamöguleiki fyrir auglýsendur um allan heim og þar með talin íslensk fyrirtæki. Nýjungin felst ekki einungis í nýjum vef heldur ekki síst í þeim markaðsupplýsingum sem að auglýsendur fá við kaupin, upplýsingar um virkni auglýsinga þeirra.
Markaðsflopp hjá Dr Pepper
Eins og við skrifuðum um hér áður þá gaf aðstoðar markaðsstjóri Dr Pepper bandaríkjamönnum loforð í mars síðastliðnum að ef hljómsveitin Guns ´N Roses myndi gefa út plötuna ‘Chinese Democrazy’ árið 2008 myndi fyrirtækið gefa öllum bandaríkjamönnum eina dós af drykknum Dr Pepper. Þegar þeir tilkynntu þetta óraði þeim líklega ekki fyrir að þeir myndu þurfa að efna loforðið því platan er búin að vera nokkur ár á leiðinni á markað. Í síðustu viku kom platan hins vegar út og var komið að því að standa við loforðið.
Vodafone og Magnús Geir verðlaunuð af ÍMARK
Við óskum viðskiptavinum okkar, Vodafone og Magnúsi Geir Þórðarsyni leikhússtjóra Borgarleikhússins, innilega til hamingju með þá viðurkenningu sem þeim hlotnaðist úr hendi ÍMARK síðastliðinn fimmtudag. Vodafone var eitt af þremur fyrirtækjum sem tilnefnt var sem markaðsfyrirtæki ársins 2008 og Magnús Geir var valinn markaðsmaður ársins fyrir starf sitt hjá Borgarleikhúsinu og Leikfélagi Akureyrar á árinu.
Dr. Pepper veðjar á Guns ‘N Roses’

Óhætt er að segja að fyrirtæki beiti mismunandi aðferðum við að koma vörum sínum á framfæri. Í mars á þessu ári tilkynnti Tony Jacobs, aðstoðarmarkaðsstjóri Dr Pepper gosdrykkjanna í Bandaríkjunum, að allir Bandaríkjamenn fengju eina dós
af Dr Pepper ef hljómsveitinni Guns ‘N Roses’ tækist að gefa út plötuna ‘Chinese Democrazy’ á þessu ári. Skemmst er frá því að segja að nú er búið að ákveða útgáfudag plötunnar, en hún mun koma út 23. nóvember eftir að hafa verið 17 ár í vinnslu.
Fjölmiðlanotkun í síðustu viku
Fjölmiðlanotkun í síðustu viku var um margt mjög óvenjuleg og er það að sjálfsögðu vegna óvenjulegra aðsæðna í þjóðfélaginu um þessar mundir. Fólk sótti í stöðugar fréttir og því jukust heimsóknir á fréttasíður á netinu, áhorf á sjónvarp jókst bæði dags og kvölds auk þess sem aukning var í útvarpshlustun.
Markvisst markaðsstarf í erfiðu árferði
Á þessum síðustu og kannski verstu tímum er oft talað um að kreppan umtalaða skelli harkalega á auglýsingabransanum. Sumir telja sjálfsagt að markaðsstarf og auglýsingagerð sé það fyrsta sem skera þurfi niður þegar halla fer undan fæti. Eins og margur markaðsfræðingur þekkir getur slíkt verið hið mesta óráð og röng ákvörðun í alla staði. Það er nauðsynlegt flestri starfsemi að setja fé í að upplýsa mögulega viðskiptavini um framboð vöru þeirra og þjónustu, með það að markmiði að komast yfir hjallann með auknum viðskiptum og halda þannig áfram.
Fjörugt sjónvarpsáhorf um síðustu helgi
Það má með sanni segja að haustið sé komið hjá sjónvarpsstöðvum landsins og áhorfendum þess, því á síðustu dögum hafa nýjir og þó nokkrir íslenskir þættir verið settir á dagskrá og landinn virðist hafa aukið áhorf sitt sem aldrei fyrr. Á meðan að vikir dagar yfir sumartímann hafa oft verið betri sjónvarpsdagar heldur en helgarnar þegar áhorf er skoðað þá má segja að því sé öfugt farið þegar veturinn tekur við. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa meira.
Skaparinn og Auglýsingamiðlun hefja samstarf
Auglýsingastofan
Skaparinn og
Auglýsingamiðlun hófu nýverið samstarf. Hafa báðir aðilar miklar og góðar
væntingar til þess. Hjá báðum þessum stofum starfa
aðilar sem hafa umtalsverða reynslu úr markaðs- og auglýsingastarfi.
Eigendur Skaparans eru Kolbeinn
Marteinsson og Loftur Leifsson, margreyndir í bransanum, eins og gjarnan er
sagt.
Hjá Auglýsingamiðlun ríkir
tilhlökkun að starfa bæði með nýja samstarfsaðilinum og ekki síst með fjölmörgum
viðskiptavinum þeirra.
Um vísitölur Auglýsingamarkaðar

Við hjá AM fylgjumst gjarnan með vísitölu auglýsingamarkaðar frá einum mánuði til annars. Þarna er fyrst og fremst verið að fylgjast með auglýsingamagni, en ekki fjárhagslegu umfangi. Ástæða þess að við fylgjumst með þessu er m.a. sú að kanna í hvaða átt markaðurinn stefnir, ekki síst í því skyni að upplýsa viðskiptavini okkur um breytingar sem eru að verða á þessu sviði. Nánari greiningar á einstökum auglýsingaflokkum eru fáanlegar hjá okkur fyrir viðskiptavini okkar.
Hugleiðingar um auglýsingar á Facebook
Íslenskir notendur Facebook hafa eflaust tekið eftir að
íslenskar auglýsingar eru farnar að birtast inni á síðunum þegar notendur skrá
sig inn og vafra um samfélagið. Markaðsfólk hlýtur því að spyrja sig hvort þeir
eigi að taka þátt í þessum, hvort það gæti verið áhrifaríkara að auglýsa þarna en á öðrum vefsíðum eða jafnvel í
öðrum tegunda miðla sem hugsanlega hafa minni dekkun.Smelltu á fyrirsögnina til að lesa meira um þessar vangaveltur.
Við erum Fyrirmyndarfyrirtæki

Niðurstöður Fyrirtækjakönnunar VR voru kynntar síðastliðinn föstudag. Auglýsingamiðlun var í 16.sæti á lista minni fyrirtækja en fyrirtæki sem hafa 49 eða færri starfsmenn flokkast sem minni fyrirtæki. Á lista voru 201 fyriræki. Könnunin byggir á sjö þáttum sem mynda heildareinkunn fyrirtækjanna:
- Trúverðugleiki stjórnenda
- Launakjör
- Vinnuskilyrði
- Sveigjanleiki í vinnu
- Sjálfstæði í starfi
- Stolt og ímynd fyrirtækis
- Starfsandi
Við getum því með ánægju sagt að við séum Fyrirmyndarfyrirtæki. Við leggjum metnað í að skapa okkur gott og vinalegt starfsumhvefi og höfum nú fengið staðfestingu á því með gæðastimpli VR og Capacent.
24 Stundir með yfir 50% lestur í fyrsta sinn
Samkvæmt nýrri fjölmiðlakönnun Capacent Gallup, sem framkvæmd var á
tímabilinu 1. jan til 30. apríl, mælast
24 Stundir með 50,4% meðallestur á tölublað og hækka sig um 4,6% frá síðustu
könnun. Þetta er í fyrsta sinn sem 24 Stundir mælast með meira en helmings
meðallestur og er greinilegt að blaðið er í mikilli sókn um þessar mundir.
SONY Foam City

SONY fyrirtækið hefur hafið herferð sem má segja að hafi strax vakið mikla athygli erlendis. Eftir að hafa birt svokallaða"teasers"- stríðnisauglýsingar í nokkrar vikur og komið nokkrum myndböndum inn á YouTube er aðal auglýsingin komin í loftið. Hér er á ferðinni Froðuborgin, e. Foam City, og er auglýsingin algjört augnakonfekt.
Lipstick Jungle "Shopisodes"

Skjár einn hefur sýningar á nýjum sjónvarpsþætti
miðvikudaginn 2.apríl sem nefnist Lipstick Jungle og hefur vakið talsverða
athygli í Bandaríkjunum síðan þeir voru teknir til sýninga. Þátturinn er
byggður á metsölubók eftir Candace Bushnell höfund Sex and the City og fjallar
um valdamiklar vinkonur í
New York. Áhorfandinn getur þó ekki aðeins horft á þættina heldur einnig keypt sér föt og fylgihluti sem aðal leikkonurnar klæðast í þáttunum.
Nýr starfsmaður
Fyrir fáeinum dögum hóf Gísli Jóhann Eysteinsson störf hjá okkur á Auglýsingamiðlun. Þetta er enn einn liðurinn í því að bæta þjónustuna okkar, en hann mun fyrst og fremst fást við rannsóknir og greiningar úr heimi markaðs- og auglýsingamála. Ásmundur er sem fyrr rannsóknastjóri okkar og mun áfram sinna því hlutverki.
Mindshare gerir það gott á Effie verðlaununum

Effie alþjóðlegu auglýsingaverðlaunin voru veitt á dögunum og að þessu sinni var hátíðin haldin í Singapore. Mindshare gerði þar góða hluti með viðskiptavinum sínum og hreppti gull-, silfur- og bronsverðlaun fyrir media strategy. Í fréttatilkynningu frá aðstaðendum verðlaunanna segir : "The Effies recognize ideas that work – the great ideas that achieve real results and the strategy that goes into creating them. Global Effie winning campaigns require a single brand idea running across at least four countries in two or more
regions worldwide within the last three years."
Birta hér?
Hollenskur strákur hefur ákveðið að vera í rúminu og halda úti heimasíðu um það. EKki nóg með það heldur selur hann auglýsingar á síðuna sína í þeim tilgangi að verða ríkur. Allt er nú til!
Green Porno með Isabellu Rossellini
Ítalska leikonan Isabella Rossellini er að hefja ansi áhugavert verkefni þessa dagana. Hún hefur leikstýrt seríu af 8 stuttmyndum um fjölgun skordýra sem eru ætlaðar til skoðunar og sýningar í farsímum og í tölvum. Þessar einna mínútu stuttmyndir eru kallaðar Green Porno og mun helsta ástæða fyrir nafngiftinni vera sú að nafnið eitt mun ná inn talsverðrum innlitum og athygli í gegnum leitarvélar internetsins.
ÍMARK HÁTÍÐIN - LÚÐRAHÁTÍÐ 2008

Á föstudaginn verður hin árlega ÍMARK ráðstefnana og Lúðrahátíð haldin. Yfirskrift ráðstefnunnar þetta árið er 360°í sjö erindum og er henni ætlað að kynna nýjungar í markaðsmálum og benda á tækifæri sem nýtast í daglegu starfi. Um kvöldið verður svo hátíðarkvöldverður og lúðraverðlaunaafhending fyrir bestu auglýsingarnar 2007. Það verður gaman að sjá hverjir af okkar samstarfsaðilum og viðskiptavinum hreppa hnossið þetta árið. Sjáumst á ÍMARK!
METRO
Góð hugmynd!
PPM -rýnt í nýjar ljósvakamælingar

Síðustu daga höfum við hér á Auglýsingamiðlun verið að skoða og kanna nýjar áhorfstölur á ljósvakamiðlum landsins sem Capacent Gallup hefur nýlega sett af stað. Þetta er í raun bylting fyrir okkur birtingafólk þar sem aðferðafræði PPM mælinganna (Portable people meter)
er mun áreiðanlegri en áður auk þess sem tölurnar eru nýjar og ferskar eða frá því í síðustu viku!
Má bjóða þér Fairtrade kaffi og orkusparandi peru?
Eru neytendur farnir að stjórna markaðsaðgerðum meira en fyrirtæki gera sér grein fyrir? Búa fyrirtækin til þörfina fyrir vörum sínum og þjónustu eða koma kröfur í auknu mæli frá neytendum sem ýtir á þróun þjónustu og vöru?