
Nýlega veitti VR verðlaunin
“Fyrirtæki ársins árið 2009”. Við hér á
Auglýsingamiðlun hlutum verðlaun annað árið í röð og erum í 9.sæti í flokki
minni fyrirtækja. Valið fer þannig fram að að
spurningalisti var lagður fyrir starfsmenn fyrirtækja þar sem þeir voru inntir
eftir mati á innra starfsumhverfi fyrirtækis síns. Mælingin náði til átta
mismunandi þátta í starfsumhverfi fyrirtækja, en með því að láta mælinguna ná
til margra þátta fæst heilsteypt mynd af innra starfsumhverfi fyrirtækja.
Við erum stolt af þessari viðurkenningu okkar, stolt af því að vera
fyrirmyndafyrirtæki árið 2009.
Nánari upplýsingar