
Nú á dögunum
birti Capacent Gallup nýjar niðurstöður úr könnun á dagblaðamarkaðinum á Íslandi
sem framkvæmd var á tímabilinu nóvember 2009- janúar 2010. Lestur hefur ekki verið minni á stóru
dagblöðunum tveimur, Fréttablaðinu og Morgunblaðinu frá því að núverandi form
mælinga var tekið upp í byrjun árs 2007.
Uppsöfnuð dekkun Fréttablaðsins mælist nú 82,1% yfir vikuna en var 87% á
sama tímabili á síðasta ári.
Morgunblaðið hefur í dag uppsafnaða dekkun yfir vikuna 57,8% en
hafði 69,9% fyrir ári síðan.
Fréttablaðið
er sterkast í aldurshópnum 50-59 ára á meðan Morgunblaðið er sterkast í
aldurshópnum 60 ára og eldri.
Fimmtudagsblað Fréttablaðsins er þeirra mest lesna blað vikunnar eins og
oft áður. Laugardagsblað Morgunblaðsins
er aftur á móti þeirra sterkasta blað vikunnar og eykst lestur á því frá
síðustu könnun þrátt fyrir að heildarlestur blaðsins hafi dregist saman. Frekari
úrvinnslu á þessari könnun má finna á vef Capacent Gallup
hér.