Íslensk fyrirtæki hafa síðustu árin verið nokkuð öflug í því að opna facebook síður fyrir starfsemi sína. Misjafnt er hvernig fyrirtækin stýra sinni síðu og hvers konar efni eru sett þar inn. Í upphafi þegar prófílsíða fyrirtækis eða vörumerkis er opnuð er yfirleitt farið í aðgerðir til að ná til fólks, þeirra sem líklegastir eru til að kaupa vöruna. Því næst er reynt að nálgast fylgjendur enn frekar til að eiga í virkum samskiptum með því að pósta efni sem er líklegt til að vekja áhuga þeirra. Slíkt efni getur verið margskonar; myndir, myndbönd, myndskot úr fyritækinu, leikir eða sérstök apps sem eru hönnuð sérstaklega með notkun viðskiptavinarins í huga. Ef efnið hreyfir á einhvern hátt við viðskiptavininum er hann líklegur til að deila efninu meðal sinna facebook vina og skrifa athugasemd með. Líklegt er að fyrirtæki þurfi að kosta einhverju til við að útbúa skemmtilegt efni, en gott efni sem nær athygli sannar tilgang sinn.
Það eru þó ekki öll fyrirtæki tilbúin í slíkan undirbúning og fara aðrar leiðir í að ná athygli á síðu sinni. Sumir telja sig þurfa og vilja gefa vörur til að ná til fjöldans, líklegast með það að leiðarljósi að margir séu tilbúnir til þess að aðstoða fyrirtækið til að eiga kost á að fá vöru ókeypis. Það er að mörgu leyti skiljanlegt þegar um góðar og dýrar vörur er um að ræða.
Það er farið að bera talsvert á því að undanförnu að fólk geti ekki átt kost á að vera með í pottinum nema að deila upplýsingunum um leikinn til vina sinna. Nýlega er sá fítus kominn inn að fyrirtæki með facebook síðu geta séð hvaða einstaklingar deila efni síðunnar. Í nokkrun tíma voru fyrirtæki einfaldlega að villa um fyrir fólki. Þau höfðu ekki aðgang að upplýsingum um hverjir gerðu það sem fyrirtækið bað um. Það virðist sem að fleiri fyrirtæki hafi tekið þetta upp eftir að fítusinn kom inn fyrir nokkru.
Það er hægt að finna kosti og galla allra kynningarleiða og þurfa stjórnendur markaðsmála að kanna mögulega stöðu og viðbrögð sem geta orðið við markaðs- skilaboðum hverju sinni. Kostir þess að fólk deildi innihaldi af síðum fyrirtækja er vissulega jákvætt fyrir fyrirtæki í flestum tilfellum. Það að setja sem skilyrði til þátttöku í leiknum að deila póstum er í grunninn verið að biðja fólk að spama vini sína. Fullyrða má að spam hafi neikvæða tengingu í huga fólks og því getur leikur fyrirtækis farið að snúast uppí andhverfu sína. Ef þú ert með gæða vörumerki og því líklegast með gæðavöru í vinning í leiknum sem margir hafa áhuga á að eignast, má búast við að margir vilji taka þátt. Með því að ná þátttöku margra sem spama á sama tíma eykst líka áreitið á fólkið sem hefur lítinn eða engann áhuga á vörumerkinu. Þannig hefur fyrirtækið sjálft tekist að minnka virði vörumerkis í huga neytandans. Hugsanlega verður vörkumerkið eða fyrirtækið pirrandi aðilinn í markaðsstarfi í huga fólks.
Ef að fyrirtæki vilja gera vel við viðskiptavini sína og gefa fygjendum sínum vörur fyrirtækisins þá er hægt að komast hjá neikvæðri upplifun fólks með því að halda leiknum á prófílsíðu fyrirtækisins án þess að setja sem skilyrði að fólki deili linknum. Einnig má styðjast við auglýsingarnar sem hægt er að kaupa til hliðar enda eru þær ósköp sakleysislegar í samanburði við spam pósta inná heimasvæði notenda facebook.