Þróun dagblaðalesturs á Íslandi

newspaper_pressÞað hafa ekki verið miklar sviptingar á dagblaðamarkaðnum undanfarna mánuði en dagblaðalestur virðist vera að aukast aftur eftir örlítið minnkandi lestur frá miðju síðasta ári.

Markvisst markaðsstarf í erfiðu árferði

Á þessum síðustu og kannski verstu tímum er oft talað um að kreppan umtalaða skelli harkalega á auglýsingabransanum. Sumir telja sjálfsagt að markaðsstarf og auglýsingagerð sé það fyrsta sem skera þurfi niður þegar halla fer undan fæti. Eins og margur markaðsfræðingur þekkir getur slíkt verið hið mesta óráð og röng ákvörðun í alla staði. Það er nauðsynlegt flestri starfsemi að setja fé í að upplýsa mögulega viðskiptavini um framboð vöru þeirra og þjónustu, með það að markmiði að komast yfir hjallann með auknum viðskiptum og halda þannig áfram.

Um vísitölur Auglýsingamarkaðar

Við hjá AM fylgjumst gjarnan með vísitölu auglýsingamarkaðar frá einum mánuði til annars. Þarna er fyrst og fremst verið að fylgjast með auglýsingamagni, en ekki fjárhagslegu umfangi. Ástæða þess að við fylgjumst með þessu er m.a. sú að kanna í hvaða átt markaðurinn stefnir, ekki síst í því skyni að upplýsa viðskiptavini okkur um breytingar sem eru að verða á þessu sviði. Nánari greiningar á einstökum auglýsingaflokkum eru fáanlegar hjá okkur fyrir viðskiptavini okkar.

Má bjóða þér Fairtrade kaffi og orkusparandi peru?

Eru neytendur farnir að stjórna markaðsaðgerðum meira en fyrirtæki gera sér grein fyrir? Búa fyrirtækin til þörfina fyrir vörum sínum og þjónustu eða koma kröfur í auknu mæli frá neytendum sem ýtir á þróun þjónustu og vöru?