Dagblaðamarkaðurinn
Við vorum að fá niðurstöður úr Prentmiðlamælingu Capacent Gallup í okt-des. Eftirfarandi dagblöð eru mæld með samfelldum hætti allt árið:
DV
Finnur.is
Fréttablaðið
Fréttatíminn
Monitor
Morgunblaðið
Viðskiptablaðið

Það hafa ekki verið miklar sviptingar á dagblaðamarkaðnum undanfarna mánuði en dagblaðalestur virðist vera að aukast aftur eftir örlítið minnkandi lestur frá miðju síðasta ári.
Áhugavert er að skoða þróun meðallesturs á landsbyggðinni en dagblaðalestur á landsbyggðinni dróst töluvert saman í byrjun árs 2009 þegar Fréttablaðið dró úr dreifingu á landsbyggðinni. Hjá 30-55 ára á landsbyggðinni er lestur Morgunblaðsins að aukast aftur eftir töluverðan samdrátt frá 2009, lesturinn virðist vera að ná sömu hæðum og frá upphafi samfelldu mælinganna í janúar 2007. Lestur Fréttablaðsins hjá hópnum er einnig að aukast en lesturinn er enn töluvert undir lestri blaðsins í janúar 2007. Lestur á Fréttatímanum og Viðskiptablaðinu fer upp á tímabilinu. Lestur DV stendur í stað frá síðasta tímabili (júlí - sept '11) og lestur Viðskiptablaðsins eykst örlítið hjá hópnum. Lestur Monitors og Finnur.is dregst aðeins saman frá síðasta tímabili.

Við á AM erum með aðgang að öllum fjölmiðlakönnunum Capacent Gallup og greinum ávallt fjölmiðlaumhverfið fyrir þann markhóp sem við erum að vinna með hverju sinni. Þar sem við erum einnig áskrifendur að Neyslukönnun Capacent getum við nú tengt upplýsingar úr prentmiðlakönnuninni við upplýsingar úr Neyslukönnun sem opnar fyrir okkur aðgang að enn ítarlegri greiningum í tengslum við markhópa viðskiptavina okkar. Við getum til dæmis sagt ykkur að 18,5% hánotenda spægipylsa á Íslandi lesa DV og eru aðdáendur spægipylsa hlutfallslega líklegri til að lesa DV en þeir sem borða sjaldnar eða aldrei.
Við viljum hvetja ykkur til að fylgja okkur á Facebook http://www.facebook.com/auglysingamidlun og Twitter http://www.twitter.com/ - !/ammediaiceland. Við setjum reglulega inn áhugavert efni, bæði upplýsingar frá okkur og einnig ef við sjáum áhugaverðar greinar, vefsíður, upplýsingar um breytingar eða nýtt efni hjá fjölmiðlum landsins, fréttir, auglýsingar og fleira sem okkur langar til að deila með ykkur.