Helstu hugtök við ákvörðun birtinga
Dekkun segir okkur
til hve stórs hluta tiltekins markhóps birting auglýsingar nær a.m.k. einu
sinni yfir birtingatímabilið. 60% dekkun
yfir vikutímabil þýðir að 60% tiltekins markhóps hafa haft tækifæri til að sjá
auglýsinguna a.m.k. einu sinni. Í sjónvarpsplönum er uppgefin dekkun uppsafnað áhorf á dagskrálið eða hlutfall þeirra sem horfðu í a.m.k. 5 mínútur samfleytt á dagskráliðinn .
Ratings % (sjónvarp): - meðaláhorf á dagskrárlið. Hlutfall þeirra sem horfðu á meðalmínútu (heimild: Capacent.is).
Ratings (000) (sjónvarp): - meðaláhorf í þúsundum. Fjöldi þeirra sem horfðu á meðalmínútu (heimild: Capacent.is).
Tíðni segir okkur hve
oft yfir birtingatímabilið auglýsing nær til tiltekins markhóps. Tíðni 2
gefur okkur að markhópurinn hafi átt þess kost að sjá auglýsinguna að
minnsta kosti tvisvar sinnum yfir birtingatímabilið.
60%
dekkun og tíðni 2 merkir að 60% markhóps hafi
fengið tækifæri til að sjá auglýsinguna a.m.k. tvisvar sinnum yfir
birtingatímabilið.
Útreikningar og þekking á birtingahugtökum er
grundvöllur góðrar birtingaáætlunar.
Snertiverð er mælieining sem er reiknuð út frá verði birtingar og fjölda áhorfenda/lesenda/hlustenda í markhópi hjá ákveðnum miðli. Nánar tiltekið hvað það kostar að ná í einn einstakling innan markhópsins. Það er notað til að meta og bera saman mismunandi hólf/tegundir auglýsinga og að lokum taka ákvörðun um hvort einstök birting er hagstæð eða ekki.
CTR (Click Through Rate): Hlutfallið milli fjölda birtinga (impressions) á auglýsingu á vefsíðu og þess hve margir smelltu (clicks) á auglýsinguna. Hlutfallið hefur lækkað síðustu ár og mælist oft undir 1%. Algengar tölur eru á bilinu 0,08-0,15 sem þýðir að 0,8-1,5 % þeirra sem fá auglýsinguna upp smella á hana til frekari skoðunar.
CPC (Cost Per Click): Kostnaður sem auglýsandi greiðir leitarvélum og öðrum vefsíðum fyrir að fá einn notenda til að smella á auglýsinguna og fara inn á heimasíðu auglýsandans. Til dæmis er notast við þessa greiðsluaðferð á Facebook.
CPM (Cost Per Mille): Einnig kallað Cost per Thousand (CPT) en það er sá kostnaður sem auglýsandi greiðir fyrir að birta auglýsinguna 1000 notendum. Hægt er að notast við þessa aðferð í miðlum eins og dagblöðum, útvarpi, sjónvarpi og á vefsíðum en þessi greiðsluaðferð hefur lítið sem ekkert verið notuð hér á landi.