Saga Auglýsingamiðlunar

Auglýsingamiðlun ehf var upphaflega stofnuð af þremur auglýsingastofum árið 2001, þ.e. Fíton, Nonna og Manna, og AUK og voru stafsmenn í byrjun fjórir talsins.  Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og er Auglýsingamiðlun í dag að mestu leyti í eigu Grafít ehf. ásamt nokkrum starfsmönnum félagsins. Auglýsingamiðlun telur nú tíu starfsmenn og hefur veltan meir en sexfaldast á þeim tíma sem liðinn er frá stofnun.  Það er ljóst að hugmyndin að baki stofnunar Auglýsingamiðlunar var góð, enda dafnar félagið vel í dag.

Í ársbyrjun 2007 gekk Auglýsingamiðlun til samstarfs við Mindshare,  eina þekktustu birtingastofu í heiminum í dag sem starfar í 67 löndum og telst með 6000 starfsmenn um allan heim.  Var það mikilvægur áfangi í starfsemi Auglýsingamiðlunar.  Tengslin gera okkur betur kleift að sækja frekari fróðleik um strauma og stefnur birtinga erlendis, vinna að verkefnum fyrir viðskiptavini okkar sem starfa einnig utan Íslands auk þess að vinna fyrir erlenda viðskiptavini sem stunda viðskipti hér á landi. 

Það hefur ætíð verið markmið Auglýsingamiðlunar að veita faglega ráðgjöf er birtingamál varðar, sem og á sviði markaðs- og auglýsingamála.  Við leggjum metnað okkar í fagmennsku, þjónustu og þekkingu.