2.10.2009

Fítonblaðið kemur út í dag!

Í dag ríkir mikil gleði í Garðastrætinu því Fítonliðar hinum megin við götuna eru að gefa út sitt árlega Fítonblað.  Þetta er áttunda árið sem blaðið kemur út og óhætt að segja að blaðið sé hið glæsilegasta.  Síðustu vikur og daga hafa allir lagst á eitt við að þjónusta viðskiptavini auk þess að vinna að blaðinu í hjáverkum. Hönnuðurnir fengu meðal annars það verkefni að gera tillögur að auglýsingum um hvaða áhrif ESB aðild hefði á auglýsingafagið og komu margar skemmtilegar pælingar úr því verkefni. Við á Auglýsingamiðlun lögðum til stutta umfjöllun um netið og möguleika þess í markaðsstarfi.  Sendu Fíton póst til að nálgast eintak. Í tilefni á útgáfunni er starfandi útvarpsstöð í dag, þar sem hitað er upp fyrir partý kvöldsins en þar munu viðskiptavinir og aðrir velunnarar mæta og tjútta saman.  Bara taumlaus gleði ....

| More