
Fyrirtæki eru í
auknu mæli farin að nýta sér samfélagsvefi til að ná betri tengslum við
markhópa sína. The Keller Fay Group fylgist árlega með um 350.000 markaðstengdri
umræðu með
TalkTrack
mælingum fyrirtækisins http://kellerfay.com/?page_id=7 hvort
sem um ræðir online umræður eða ekki. Partur af ferlinu eru regluleg viðtöl við
panel sem samanstendur af 36.000 manns en nýverið hefur fyrirtækið nýtt sér
þessa leið til að meta hlutverk Facebook í vörumerkjauppbyggingu.
Samantekt
könnunarinnar sýnir að notendur Facebook áttu að meðaltali 36% oftar umræður um
vörur og þjónustu á viku heldur en þeir sem nota ekki Facebook. Umræðurnar (WOM)
áttu við um ýmsa vöruflokka og má þar helst nefna umræðu um barnavörur (47%), fatnað og fylgihluti (46%) og tæknivörur (43%). Umræða
fór upp í 42% fyrir ýmsa miðla og afþreyingu, snyrtivörur og ferðabransann og
um 30% fyrir matar, drykkjar og farsímavörur.
Skv. Keller Fay
eru Facebook notendur 67% líklegri til að teljast sem áhrifavaldar en aðrir.
Það sem kom helst á óvart var að þessar umræður um vörur og þjónustu eru
líklegri til að eiga sér stað face-to-face
en netinu. 77% samtalanna áttu sér stað milli fólks, 4% MSN
eða SMS og 1% í netspjalli, með bloggi og á samfélagsvefjum.
Notkun
samfélagsvefja í markaðsmálum er í stöðugri þróun enda keppast fyrirtæki við að
finna nýjar og betri leiðir til að nálgast sína helstu viðskiptavini. Spurningin
er hvernig er best að nýta sér samfélagsvefi? Ýmsar leiðir hafa verið reyndar
sem skila ekki árangri og rétta leiðin getur reynst vandfundin en árangur næst
ekki ef ekkert er reynt, fyrirtæki þurfa að finna sína leið að viðskiptavinunum.
Ein leiðin hefur
verið sú að fá vinsæla bloggara í lið með sér með því að gefa þeim ýmsar vörur
eða aðgang að þjónustu o.s.frv. með það fyrir augum að bloggararnir tjái sig um
vöruna. Dæmi um vel heppnaða herferð er kynning Ford á nýjum Fiesta www.fiestamovement.com/
Í apríl á þessu
ári fékk Ford 100 vinsæla bloggara í USA með sér í lið við að kynna nýja gerð
af Ford Fiesta en bloggararnir fengu allir bíl til afnota í 6 mánuði og í
staðinn póstuðu þeir reglulega skoðunum sínum um bílinn á Facebook, Twitter eða
öðrum samfélagsvefjum. Í október hafði efnið frá bloggurunum fengið 4.3 milljón
smelli á YouTube, 3 milljón komment á Twitter ásamt því að 540.000 manns höfðu
skoðað þær myndir sem voru á Flickr myndasíðunni. Þrátt fyrir að einungis 100
bílar væru í umferð í USA mældist bíllinn með 60% eftirtekt eftir
þetta 6 mánaða tímabil og kemur hann ekki á markað fyrr en um mitt næsta ár. Í
gær, 1.des., voru kynnt úrslit frá vali netverja á uppáhalds bloggurum sínum á
bílasýningu í L.A., einnig var bíllinn afhjúpaður á sýningunni. Hægt er að sjá
brot frá sýningunni á
hér