30.12.2009

AM 2009

Is it true? -  Söng Jóhanna Guðrún í Moskvu þetta árið, aðeins nokkrum mánuðum eftir að fréttir bárust heimsbyggðinni og okkur saklausu Íslendingunum að landið væri komið á hliðina í mörgum skilningi. Fjármál einstaklinga og fyrirtækja tóku stakkaskiptum á stuttum tíma, breyttar áherslur í viðskiptum litu dagsins ljós og ákvarðanir í markaðsmálum og auglýsingagerð tóku breytingum.  Það má því segja að árið 2009 hafi að mörgu leyti farið í leit lausna hjá okkur, samstarfsaðilum og viðskiptavinum, nýrra lausna í breyttu landslagi í markaðsmálum- ágætis áskorun þar.

Í byrjun árs höfðu margir auglýsendur hægt um sig enda víða óvissa um framtíð fyrirtækja.  Hægt og rólega fóru hlutirnir að glæðast, nýjar strategíur settar upp fyrir næstu mánuði, aðrar áherslur settar í forgang og áfram var haldið.  Talsvert var birt af eldra efni, sjónvarps- og útvarpsauglýsingum sem voru til og því eitthvað minna um prent auglýsingar en áður.  Áður en langt um leið var þó framleiðsla á grafískum sjónvarpsauglýsingum komin á fullt skrið og því má segja að auglýsendur hafi haldið sig talsvert við sjónvarp þetta árið.  Rekstur Skjás eins hefur gengið erfiðlega og á tímabili leit út fyrir að stöðin myndi hverfa af markaði en í nóvember hófst áskriftarsala í þeirri von að halda stöðinni á lífi og eru komnir rúmlega 20 þúsund áskrifendur í lok þessa árs. Íslenskt dagskrárefni hefur gengið vel eins og síðustu ár, Útsvar, Spaugstofan, Marteinn, Wipeout, Fangavaktin og Auddi og Sveppi hafa dregið marga að skjánum að undanförnu.  ÍNN hefur aukið dagskrágerð sína talsvert á árinu og finna fyrir auknu áhorfi skv. áhorfskönnunum sínum.

Ný útvarpsstöð, Kaninn,  leit dagsins ljós á árinu.  Hlustun á þeirri stöð hafa ekki verið með í PPM mælingum Capacent en mun þar verða breyting á á nýju ári.  Verður spennandi að sjá hvernig þeirri stöð gengur á annars fámennum markaði.  RÚV og Bylgjan hækkuðu verðskrar sínar á árinu. 

Dagblaðamarkaðurinn hefur aðeins breyst á árinu.  Meðallestur dalaði eftir því sem líða tók á árið sem er í samræmi við breytingar á útgáfu og dreifingu.  Fréttablaðið dró úr dreifingu í heimahús á landsbyggðinni og hætti með sunnudagsútgáfu sína á blaðinu. Nú í haust bættu þeir dreifinguna með því að gera samning við N1 um dreifingu Fréttablaðsins í þéttu dreifikerfi N1 stöðva á landsbyggðinni.  Helgarblöð Morgunblaðsins koma nú bæði út á laugardagsmorgnum og því er ekkert sunnudagsblað gefið út á Íslandi í dag. DV kemur nú út 3 sinnum í viku, en er ekki með í fjölmiðlamælingum Capacent Gallup. Lestur á dagblöðum hér á landi er þó enn talsvert mikill í samanburði við löndin í kringum okkur. 

Viðskiptavinum okkar og samstarfsstofunni Fíton gekk vel í Lúðraöflun fyrr á árinu. Margar tilnefningar og sigrar í nokkrum flokkum. Tilnefningar fyrir Vodafone, N1, Iceland Express, Fítonblaðið, Borgarleikhúsið, Morgunblaðið og Mænuskaðastofnun og sigrar í eftirfarandi flokkum:

Sjónvarpsauglýsingar: Skítt með kerfið fyrir Vodafone
Útvarpsauglýsingar: Jóla-jóla fyrir Vodafone
Vöru-og firmamerki: Merki Borgarleikhússins
Markpóstur: Colourful Reykjavík fyrir Iceland Express
Val fólksins: Vodafone

Dominos og auglýsingastofið Ó-ið vann einnig tímaritaauglýsingu ársins fyrir auglýsinguna “Heitar pizzur”. 

Markaðsverðlaun ÍMARK voru veitt nú í haust. Vodafone og N1 voru tilnefnd sem markaðsfyrirtæki ársins og Hermann Guðmundsson forstjóri N1 hlaut titilinn Markaðsmaður ársins. Tilnefningarnar, viðurkenningar og sigrarnir marka gott markaðsstarf fyrirtækjanna sem við erum stolt af að hafa tekið þátt í.  Aðrar samstarfsstofur hafa einnig verið að ganga vel á árinu. Pipar sameinaðist Himinn og haf og tóku upp nafnið Pipar/TBWA og hafa þar með aukið viðskiptavinaflóru sína. Á vormánuðum tókum við þátt í kosningabaráttu með viðskiptavinum okkar, Vinstri grænum og Samfylkingunni.  Unnið var stíft á tveimur stöðum með kosningateymum flokkanna við rannsóknavinnu, greiningum á skoðanakönnunum og ýmsum rannsóknum varðandi fylgi flokkana.  

Á haustmánuðum jókst framleiðsla auglýsinga og gamli krafturinn sýndi sig á ný. Næstu mánuðir líta út fyrir að vera spennandi og verkefnavinna fyrir fyrstu mánuði komandi árs löngu hafin. Samfélagsvefir og netið eru farnir að hafa meiri áhrif á markaðsstarf heldur en áður og mörg fyrirtæki farin að nýta sér það til muna.  Árið 2010 munu netmál fyrirtækja og frekari nýting þess toppa sem aldrei fyrr.     

Við erum full tilhlökkunar fyrir næsta ár og erum viss um að með áframhaldandi jákvæðni, góðri skipulagningu og lausnavinnu náum við sama góða árangri með fyrirtækjum okkar og sýndi sig 2009.   Gleðilegt 2010!




| More