21.6.2010

Sólarbirta

Sumarið er komið, fólk dreifist um allt land og utan þess einnig.  Margir lifa gjörólíku lífi  á þessum tíma ársins, þessar nokkrar vikur ársins meðan sólin er hátt á lofti.  Þetta er ekki háannatími auglýsingabirtinga hjá mörgum fyrirtækjum en það eru helst útivistaverslanir og bjórframleiðendur sem eru dugleg að auglýsa í hefðbundnu miðlunum á þessum árstíma og láta HM ekki framhjá sér fara þetta árið. 

Það er þó mikilvægt að halda tengslum við viðskiptavini sína yfir þetta tímabil einnig, jafnvel með óhefðbundnari og öðrum leiðum en yfirleitt er gert. Til dæmis er hægt að notast við vefborða á óhefðbundnari stöðum en vanalega, til að mynda á síðum sem tengjast veðri, ferðalögum, útiveru og slíkt en því miður er ekki hægt að kaupa auglýsingapláss inná veður.is sem er fjölsótt síða meðal Íslendinga.  Einnig ef viðkomandi er með vörur eða þjónustu fyrir ferðamenn er ekki vitlaust að höfða til þeirra sem eru að heimsækja Ísland heim og notast við þá miðla og leiðir sem erlendir ferðamenn nota til að afla sér upplýsinga. 

Bankarnir voru duglegir að láta fólk fá sumarleyfisútbúnað þegar gjaldeyrir var keyptur eins og handklæði, derhúfur eða sólarvörn, en þannig lágu viðskiptavinir á handklæðum frá bankanum sínum á ströndinni á Majorka og út um allan heim.  Buffin fyrir börnin eru einnig ógleymanleg mörgum foreldrum í landinu. Spurning hvað bankarnir gera í slíkum málum á næstunni.

Útimiðlar eru án efa góður miðill til að notast við í auglýsingum yfir þetta tímabil.  Frumlegar framsetningar og hugmyndir, oft eitthvað sem fólk getur skoðað, snert eða leikið sér með, breyta umhverfi fólks á einhvern hátt og geta þannig ýtt undir tengsl viðskiptavina við vörumerki eða fyrirtæki.  Stórum bílum með auglýsingaskiltum er stundum stillt upp við fjölfarna staði, flugvél með texta á borða er eitthvað sem sést stundum, veltiskilti við íþróttasvæði eru oft nýtt og fleira skemmtilegt sést endrum og sinnum.  Ferskar hugmyndir njóta alltaf þess að vera nýstárlegar og vekja því athygli.  Það er óhætt að segja að hugmyndin hér að neðan er eftirtektarverð og skemmtileg.



Nú stendur yfir alþjóðleg hátíð auglýsingafólks í Cannes og eru margar mjög áhugaverðar auglýsingaleiðir tilnefndar til verðlauna.  Tvær áhugaverðar tilnefningar eru frá Stokkhólmi.  Þar á meðal þetta áhugaverða skilti frá Nokia. Píanóstiginn í lestarstöðinni er einnig mjög vel heppnaður.   Hérna má sjá allar tilnefningar til verðlauna þetta árið.

Vonandi verða nokkrir íslenskir auglýsendur frumlegir í sumar, koma skilaboðum til viðskiptavina sinna á skemmtilegan og óvenjulegan hátt, því sumarið er svo sannarlega tíminn fyrir slíkar uppákomur.


| More