
Nú er fyrsti mánuður þessa árs liðinn og nóg að gerast í bransanum, sérstaklega hjá sjónvarpsstöðvum landsins. Stöð 2 Sport átti góðan mánuð og var áhorfið á leiki íslenska landsliðsins í HM í handbolta yfirleitt mjög gott. Áhorf í aldursflokknum 18-49 ára í leik Íslands og Ungverjalands, 14.janúar kl. 16-17.30 var um 43% og var leikurinn í opinni dagskrá. Áhorfið lækkaði niður í 29% í leiknum við Norðmenn þann 20.janúar kl.18.10-19.40 en jókst aftur í Þýskalandsleiknum þann 22.janúar og fór þá upp í rúm 36% en báðir þessir leikir voru í lokaðri dagskrá aðeins fyrir áskrifendur. Enginn teljandi munur er á áhorfi karla og kvenna og því má segja að breiður hópur fólks sé að fylgjast með landsliðinu okkar í handbolta.
Nýr spurningaþáttur Ha! fór í loftið á Skjá einum nú í janúar og verður hér eftirá föstudagskvöldum og Eurovision keppnin á RÚV er hafin með undankeppni að venju. Lokaþáttur undankeppninar er 12.febrúar næstkomandi. Gillz hefur einnnig tekið að sér að kenna fólki mannasiði og eru samnefndir þættir sýndir á Stöð 2 á fimmtudagskvöldum.
Það verður einnig margt að gerast í febrúar á sjónvarpsstöðvum landsins. Ný íslensk þáttaröð og eitt stærsta verkefni Skjás eins til þessa hefur göngu sína í febrúar en það eru þættirnir Makalaus, gerðir uppúr samnefndri bók Tobbu Marínósdóttur. Þá mun annar íslenskur þáttur einnig fara í loftið á Skjá einum, Dyngjan, með þeim Nadiu Banine og Björk Eiðsdóttur við stjórnvölinn þar sem fjallað verður um samskipti kynjanna. Stöð 2 hefur sýningar á glænýjum þætti Boardwalk Empire þar sem Martin Scorsese leikstýrir og kemur að og American Idol með nýjum dómurum fer á fulla ferð. Nýr matreiðsluþáttur hefur göngu sína á RÚV sem Yesmine Olsson stýrir og hinn sívinsæli Gettu betur fer einnig af stað í febrúar. Í lok mánaðarins eða þann 27.febrúar verða svo Óskarsverðlaunin afhent í beinni útsendingu á Stöð 2. Nú fer einnig fjör að færast í fótboltaleikina í enska boltanum og 16 liða úrslitin í meistaradeildinni á Sportinu. Það er því óhætt að segja að nóg er í boði fyrir sjónvarpsáhorfendur á næstu vikum.