9.3.2011

Sjónvarpisáhorf, nýtt á dagskrá & fermingar

 

Áhorf nýrra dagskrárliða

Við tókum saman áhorfstölur á nokkra nýja dagskrárliði sem fóru af stað í febrúarmánuði. Flestir dagskrárliðanna sem við skoðuðum, voru tiltölulega jafnir í áhorfi hjá konum og körlum en mesta muninn sáum við í matreiðsluþættinum Framandi og Freistandi (Yesmine Olsson á RÚV) þar sem áhorf hjá körlum var 14,7% en 19,7% hjá konum.

Við skoðuðum einnig áhorf dagskrárliðanna hjá aldurshópunum 18-35 ára og 25-55 ára. Lokaþáttur Söngvakeppninnar var með yfir 45% meðaláhorf hjá báðum hópum, aðeins sterkari í eldri hópnum með 54% meðaláhorf. Fyrsti þáttur Gettu betur í beinni útsendingu í sjónvarpi var einnig aðeins sterkari í eldri hópnum með 20% meðaláhorf hjá 18-35 ára og 24% meðaláhorf hjá 25-55 ára. Skiptingunni var öfugt farið á Gillz á Stöð 2 en meðaltal fyrstu þriggja þáttanna var 20,2% hjá 18-35 ára, 17% hjá eldri hópnum. Fyrsti þáttur bandaríska þáttarins Boardwalk Empire fékk sæmilegt áhorf, um 10% hjá báðum hópum. Þátturinn fjallar um upphaf áfengisbannsins í USA í kringum 1920 og er meðal annars framleiddur af Martin Scorsese og Mark Walhberg. Þátturinn fékk mjög góða gagnrýni þegar hann var sýndur í Bandaríkjunum og ætti því að eiga töluvert inni af áhorfi hér á landi. Mælum með að kíkja á tæknibrellur í kringum gerð þáttarins, fróðlegt og skemmtilegt að sjá tilburðina við gerð vandaðs efnis.

Tveir íslenskir þættir byrjuðu á Skjá 1 í febrúar, spurningaþátturinn HA? og kvennaspjallþátturinn Dyngjan. Það virðist svo að þrátt fyrir að Dyngjan sé kvennaspjallþáttur hafi það ekki áhrif á áhorf karla því lítinn sem engan mun má sjá á áhorfi kvenna og karla, ætli efni þáttanna sé ekki jafn spennandi fyrir karlmenn, fá að gægjast í “saumaklúbbsveröldina”. Þátturinn Makalaus átti einnig að hefjast í febrúar en var seinkað fram til 3.mars vegna veikinda aðalleikkonunnar sem urðu til þess að framleiðsla þáttanna seinkaði rétt aðeins.

 

Nýtt íslenskt efni á sjónvarpsstöðvunum í mars

Í mars hefur Innlit-útlit göngu sína að nýju eftir töluvert hlé, nýjir þáttastjórnendur hafa tekið við og ætla að gera spennandi breytingar á þættinum en einnig mun matreiðsluþáttur Hrefnu Sætran hefjast að nýju í mars á Skjá 1. Ný íslensk spennuþáttaröð, Tími nornarinnar, hefst á RÚV 27.mars ásamt því að beinar útsendingar frá úrslitakeppni N1 deildarinnar í handbolta hefjast á RÚV 30.mars. Sex þátta sería af Pressunni II hefst á Stöð 2 þann 20.mars og bíða eflaust margir spenntir eftir þáttunum þar sem fyrri serían naut töluverðra vinsælda. Aðrir íslenskir þættir sem hefjast á St.2 í mars eru Hamingjan sanna sem byggðir eru á metsölubókinni “Meiri hamingja” en í þáttunum er fylgst með átta Íslendingum sem vinna í því að auka hamingju sína. Ferða- og heilsuþáttur Arnars Grant og Ívars Guðmundssonar “Á ferð og flugi” hefst í lok mars en þeir félagar ferðast til fimm borga og skoða matarvenjur borgarbúa ásamt því að hitta á nokkra Íslendinga sem búsettir eru í borgunum. Til viðbótar við þá íslensku dagskrárliði sem hér hafa verið taldir upp er ávallt að finna íslenskt efni á ÍNN en þar hafa menn verið duglegir við að halda uppi innlendum dagskrárliðum eins og Heilsuþætti Jóhönnu, Frumkvöðlum og Græðlingi svo einhverjir séu nefndir. Ýmsir spennandi viðburðir eru næstu vikur í sportinu og má þar nefna leik Man Utd. – Arsenal þann 12.mars á St.2 sport og Þýskaland-Ísland í undankeppni EM í handbolta 9. og 13.mars, sýndir á RÚV og St.2 sport. Formúlan hefst einnig að nýju á St.2 sport í mars. Óhætt er að segja að innlend þáttagerð sé í blóma og vonumst við til að Íslendingar kunni að meta það og skili í góðu áhorfi.     

 

Sérblöð um fermingar og hönnun

Framundan eru fermingar um 4.000 barna á Íslandi en fyrstu fermingarnar eru í kringum 20.mars. Dagblöðin eru þegar byrjuð á fermingarblöðum sínum og munu þau halda áfram fermingarsérblöðunum næstu vikurnar. Fermingarblað Morgunblaðsins kom út 4.mars, Fermingarblað Fréttablaðsins kemur út 23.mars, Fréttatíminn hefur einnig hafið umfjallanir um fermingar og veisluhöld og verður áfram með sérkafla um fermingar í tölublöðum sínum næstu vikurnar. Þema næsta tölublaðs Gestgjafans er Krakkar og fermingar og er útgáfudagurinn 24.mars, sama dag kemur út Brúðarblað Nýs lífs. Mars hefur síðustu ár verið tileinkaður hönnun og tísku með tilkomu HönnunarMars. Morgunblaðið og Grapevine gefa út sérblöð um HönnunarMars og Fréttablaðið gefur út sérblað um Reykjavík fashion festival sem haldið verður í lok mars. Þessi upptalning á sérblöðum um fermingar og hönnun er ekki tæmandi því dagblöð og tímarit landsins eru dugleg við að gefa út sérblöð sem tengjast líðandi stundu.

 

Til að sjá hvað fleira er framundan á næstu mánuðum má sjá á markaðsdagatali AM hér til hliðar.

 

 


| More