15.3.2011

Videoleiga og facebook gjaldmiðill

mw-630-facebook-dark-knight-630wÞað er alltaf svolítið spennandi þegar nýjungar koma á markað og fyrir markaðsfólk þá er ný tegund af þjónustu og hugsanlega breyttar notkunarleiðir fyrir neytendur afar spennandi. Þá keppast fyrirtæki á samkeppnismarkaði um að vera fyrr til að grípa ýmis tækifæri, ekki síst þegar að tækninýjungar eiga í hlut, því það að vera fyrstur til að gera vörur betri fyrir neytendur getur gefið vörumerkjum gott samkeppnisforskot. Þróun hefur átt sér stað að undanförnu á samfélagsvefnum Facebook að undanförnu sem gæti leitt til töluverðar breyttrar notkunar notenda þess í framtíðinni. 

 

Warner Brothers tilkynnti í vikunni að fyrirtækið ætli að bjóða kvikmyndir til leigu á Facebook og er fyrsta myndin sem í boði er „The Dark Knight“.  Notendur greiða fyrir leiguna með gjaldmiðli Facebook sem hingað til hefur mest verið notaður til að greiða fyrir (sýndar) hluti til að nota í leikjum eins og Farm ville og Mafia Wars. Ljóst er þessi gjaldmiðill er hægt og bítandi að verða útbreiddari meðal notenda því  í dag eru 22 af 25 mest spiluðum leikjum á síðunni að bjóða spilurum (sýndar) hluti til að komast lengra í leiknum.

 

Warner Brothers taka þessa stefnu að einhverju leyti til að stemma stigi við síaukið ólöglegt niðurhals og dreifingu DVD. Það hafa komið fram ýmsar getgátur hvað þetta muni leiða af sér en þetta er vissulega ógnun við fyrirtækis eins og Netflix sem býður uppá svipaða þjónustu í gegnum heimasíðu sína.  Facebook er ekki í stakk búið eins og er til að gera þessa þjónustu aðgengilega fyrir alla framleiðendur og hafa ekki gert neina langtímasamninga við Warner Brothers heldur er einungis verið að prófa sig áfram og sjá hvernig þessi þjónusta þróast.  Hvort þetta takist hjá Warner eða ekki þá fær fyrirtækið hrós fyrir að þora og taka af skarið í þessum málum.  Ef vel gengur gæti ekki liðið á löngu þangað til að jafnvel íslensk fyrirtæki gætu farið að selja vörur sínar gegn facebook peningum.      


| More