18.3.2011

Hvenær er almenn þekking almenn?

quizRightLúðrahátíð markaðsfólks er nýafstaðin. Markaðsdagur Ímark „Allskonar fyrir markaðsfólk“, var vel sóttur í ár og uppselt var á Lúðurinn, íslensku auglýsingaverðlaunin, um kvöldið. Almenn ánægja var með markaðsdaginn og fannst ráðstefnugestum fyrirlesararnir vera með gott innlegg í markaðsstarfið.

 

Til að fyrirlestur teljist almennt góður og gagnlegur þurfa þeir sem sitja hann að hafa ákveðna grunnþekkingu á efninu til að hann nýtist þeim sem best.  Ef fyrirlestur er of sérhæfður og ekki innan þekkingarsviðs gestanna gagnast hann síður og fyrirlesarinn nær ekki nógu góðum tengslum við áheyrendur. Scott Bedbury, aðalfyrirlesari markaðsdagsins, er þekktastur fyrir að vera hugmyndasmiðurinn á bakvið „Just do it“ og að gera Starbuckskaffibollann að öðru og meira en bara kaffibolla. Hann lagði áherslu á að mikilvægt sé að hafa yfirgripsmikla þekkingu á þeim markaði sem unnið er á  hverju sinni. Þegar hann byrjaði hjá Starbucks var keðjan starfandi in the coffee market serving people“, hann snéri þessu við og núna er skilgreining Starbucks sú að þeir starfi „in the people‘s market, serving coffee”. Hann lagði áherslu á að ráðstefnugestir störfuðu „in the people‘s market servicing people“ og hnykkti út með því að kjarni hvers vörumerkis væri fólkið á bakvið það og að í lokin væri það starfsfólkið sem drifi vörumerkið áfram. Þetta vissum við öll eða hvað?

 

Það er eitt sem ég hef oft tekið eftir á stundum sem þessum og líka staðið sjálfa mig að þó ég vilji ekki viðurkenna, það er umræðan um að fyrirlestur hafi verið mjög góður og gagnlegur, hann hafi í sjálfu sér ekki verið um neinar nýjungar, hafi verið svolítið common sense en þrátt fyrir það verið góður. Getur verið að okkur finnist sumir fyrirlestrar vera common sense því fyrirlesarinn  nær að binda saman í eina heild vitneskju sem við höfum sankað að okkur úr ýmsum áttum en ekki almennilega náð að tengja saman í verki? Fyrirlestrar um markaðsmál eru varla common sense fyrir fólk sem hefur ekki komið nálægt markaðsmálum og á þessum markaði sem og öðrum má ekki gleyma því að það sem við vinnum við og teljum almenna þekkingu, er ekki alltaf það almenn þekking.

 

Rúna Dögg Cortez

Pistill birtur í Viðskiptablaðinu 17.mars 2011


| More