Ný dagblaðakönnun Capacent Gallup var að koma út sem framkvæmd var á tímabilinu júlí til september. Frá síðustu mælingu fyrr á árinu hefur lestur dregist saman hjá öllum þeim prentmiðlum sem eru í mælingu en misjafnlega mikið þó. Þegar allt landið er skoðað kemur í ljós að meðallestur á tölublað hjá Morgunblaðinu er 32% og hefur aldrei verið lægri frá því að mælingar með núverandi fyrirkomulagi hófust. Meðallestur á Fréttablaðið er tæp 60% og hefur aðeins tvisvar sinnum áður mælst lægri. Meðallestur á DV sem hefur aðeins verið með í síðustu þremur mælingum lækkar úr rúmum 13% í tæp 11%. Fréttatíminn sem einnig hefur aðeins verið með í þremur mælingum lækkar og mælist í dag með tæplega 37% meðallestur. Áhugavert verður að fylgjast með því í næstu könnunum hvort þetta sé viðvarandi ástand að dagblaðalestur sé að minnka á Íslandi.
Það er athyglisvert að skoða nokkra valda hópa og hvernig lestur mælist hjá þeim. Til dæmis þegar hópurinn 30-55 ára sem hafa lokið framhalds- eða háskólaprófi er skoðaður sést að nokkur munur er á lestri kynjanna. Lesturinn á Fréttablaðið er 10% hærri meðal kvenna en karla í þessum hópi en 14% fleiri karlar en konur lesa Morgunblaðið. Lestur á Fréttatímann mælist hins vegar mjög jafn. Karlar eru einnig talsvert líklegri til að lesa DV en 30% fleiri karla lesa blaðið en konur. Mestur munurinn milli kynjanna er þó að sjá við lestur á Viðskiptablaðinu en þar lesa karlar um 90% meira heldur en konur. Af sérblöðum Morgunblaðsins sést að konur lesa frekar Monitor en karlar en karlar lesa Finnur.is frekar en konurnar. Appelsínuguli liturinn táknar lestur kvenna og sá blái karla.
